Það er ekki fylleríið eða böndin, það er sú staðreynd að allir mæta þarna og eru vinir, ólíkt öðrum hátíðum á Íslandi.
- Gunnar Þórólfsson



Hljómsveitir
Sagan
Fréttir
Miðar
Dagskrá
Hvar?
Myndefni
Hafa samband
Hafa samband

Napalm Death á Eistnaflugi 2010
8. March 2010 Mon. | Eistnaflug

"Þetta verður algjör sturlun," segir Stefán Magnússon, skipuleggjandi tónlistarhátíðarinnar Eistnaflug.

Breska dauðarokkhljómsveitin Napalm Death kemur fram á Eistnaflugi í ár, en hátíðin er haldin árlega í Neskaupstað. Napalm Death var stofnuð árið 1981 og er brautryðjandi í heimi dauðarokksins.

Þrátt fyrir að hljómsveitin sé búin að vera að í næstum því 30 ár eru meðlimirnir enn þá í fullu fjöri að sögn Stefáns. "Það er svo víðsfjarri að þeir séu orðnir einhverjar lummur," segir hann. "Þeir sem hafa séð þá úti tala um snilld. Algjöra snilld."

Eistnaflug hefur stækkað ár frá ári, en fleiri en þúsund gestir sóttu hátíðina í fyrra. Hljómsveitir á borð við Mínus og Dr. Spock hafa boðað komu sína í ár ásamt mörgum af helstu rokksveitum landsins. Stefán skynjar mikla spennu fyrir Napalm Death. "Gömlu hundarnir sem hlustuðu á Scum-plötuna eru búnir að hafa samband við mig. Þeir trúa þessu ekki," segir hann.
Meðlimir Napalm Death eru mjög spenntir fyrir komunni til Íslands og ætla að sögn Stefáns að skoða land og þjóð.

"Þeir ætla að fara í Dimmuborgir, taka túristann og hafa gaman," segir Stefán. "Shane og Barney [meðlimir Napalm Death] eru þegar byrjaðir að plana ferðalagið."

Eistnaflug fer fram dagana 8. til 10. júlí og miðasala hefst eftir helgi. Miðaverð er að sjálfsögðu 6.666 krónur.

(texti tekinn úr fréttablaðinu)