Hvernig kemst þú á Eistnaflug (ef þú ert erlendis)
www.Icelandair.is
www.icelandexpress.is
Flug frá Reykjavík til Egilsstaða
www.flugfelag.is
Hátíðin er haldin í Neskaupstað, hjarta Austurlands. Gistiaðstaða er á tveimur tjaldsvæðum; hinu svokallaða "djammstæði" við enda bæjarins og á fjölskyldutjaldstæðinu í hlíðinni ofan við miðbæinn.
Ef fólk vill ekki gista í tjaldi þá er hægt að panta sér herbergi á Hótel Eddu eða Hótel Capitano.
18 ára aldurstakmark er á hátíðina og er það afmælisdagurinn sem gildir en ekki fæðingarárið. Hægt er að nálgast miða í forsölu á midi.is eða í Skífunni á Laugavegi. Miðaverð í forsölu er 6.666 kr en miðaverð við hurð er 7.500 kr
Hvenær? 8. - 10. júlí 2010
Er rúta í boði á Eistnaflug?
-
Nei, en hægt er að fljúga til Egilsstaða með Flugfélagi Íslands og taka þaðan rútuna til Neskaupstaðar.
-
Ef farið er á bíl frá höfuðborgarsvæðinu tekur um 9 tíma að keyra, með stoppum.
-
Um er að ræða rétt rúma 700 kílómetra.
 |